Valskonur lögðu Fylki (myndskeið)

Elín Metta Jensen skoraði tvö mörk í kvöld. stækka

Elín Metta Jensen skoraði tvö mörk í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Valskonur fóru langt með að tryggja sér Reykjavíkurmeistaratitil kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar þær sigruðu Fylki, 4:2, í Egilshöllinni.

Valur er með 9 stig en Fylkir 6. Valur er með markatöluna 14:2 en Fylkir 11:5. Valskonum nægir jafntefli við Þrótt í lokaleiknum til að verða meistarar en tapi þær leiknum þarf Fylkir að sigra Fjölni með minnst fimm mörkum.

Staðan var 1:1 eftir aðeins fjórar mínútur en fyrst skoraði Eva Núra Abrahamsdóttir fyrir Fylki og síðan jafnaði Mist Edvardsdóttir fyrir Val og þannig stóð í hálfleik.

Elín Metta Jensen kom Val yfir með fallegu skoti á 59. mínútu en Rakel Jónsdóttir jafnaði fyrir Fylki tíu mínútum síðar, 2:2.

Sex mínútum fyrir leikslok skoraði fyrirliðinn Rakel Logadóttir, 3:2, og tveimur mínútum síðar innsiglaði Elín Metta sigur Vals með sínu öðru marki.

Myndskeið af mörkunum er komið á heimasíðu SportTV sem sýndi leikinn beint og það er á þessari slóð:

Mörkin úr Valur - Fylkir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is