Góð fyrirheit hjá Njarðvík
Njarðvík vann Hauka 71:64 á útivelli í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik í dag. Njarðvík minnkaði þar með forskot Keflavíkur á toppi deildarinnar í tvö stig en Keflavík á þó leik til góða.
Haukar höfðu yfir eftir fyrsta leikhlutann 25:20 en í öðrum fjórðungi náði Njarðvík að jafna í stöðunni 27:27 og eftir það náðu Haukar aldrei að koma til baka. Njarðvík seig fram úr og hafði að lokum sanngjarnan sigur.
Stigahæst í liði Njarðvíkur var Shanae Baker-Brice með 21 og 10 fráköst en Lele Hardy kom næst með 12 stig og 13 fráköst. Hjá Haukum átti Margrét Rósa Hálfdánardóttir stórleik en hún var með 28 stig og 6 fráköst. Skotnýting hennar í teignum var einnig mögnuð eða 85%, af þrettán skotum rötuðu ellefu þeirra í körfuna.
Liðin mætast í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ á mánudaginn og gefur sigur Njarðvíkur því góð fyrirheit en þá verður leikið í Njarðvík.






