Hamar heim úr Vesturbænum með stigin tvö
Hamar gerði góða ferð í Vesturbæinn og tók bæði stigin sem í boði voru gegn KR í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik. Lokatölur voru 72:69 en staðan í hálfleik var 40:35 KR í vil. KR hafði enn yfir eftir þriðja leikhlutann, 54:53 en í síðasta fjórðungnum sem var æsispennandi hafði Hamar betur.
Aftur var það landsbyggðin sem hafði betur þegar Valur og Snæfell mættust á Hlíðarenda. Lokatölur þar voru 88:82, Snæfelli í vil en staðan í hálfleik var 54:45 gestunum í vil.
Með sigrinum nálgaðist Snæfell fjórða sætið þar sem KR situr nú með 24 stig. Snæfell er með 22 í 5. sæti á undan Val með 16 og Hamri með 12. Fjölnir er svo á botninum með 10 stig.
Nánari tölfræði úr leikjunum má sjá hér fyrir neðan.
Valur - Snæfell 82:88
Vodafonehöllin, Iceland Express-deild kvenna, 11. febrúar 2012.
Gangur leiksins:: 8:11, 14:19, 22:25, 29:30, 34:37, 37:38, 39:47, 45:54, 50:61, 54:66, 54:73, 58:75, 60:79, 68:83, 75:88, 82:88.
Valur: Melissa Leichlitner 29/5 fráköst, Lacey Katrice Simpson 13/15 fráköst/4 varin skot, María Ben Erlingsdóttir 12/5 fráköst, Þórunn Bjarnadóttir 10, Guðbjörg Sverrisdóttir 9, Kristrún Sigurjónsdóttir 4, Hallveig Jónsdóttir 3/4 fráköst, María Björnsdóttir 2.
Fráköst: 23 í vörn, 13 í sókn.
Snæfell: Jordan Lee Murphree 22/9 fráköst, Kieraah Marlow 21/10 fráköst/7 stoðsendingar, Hildur Sigurðardóttir 16/7 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 12/7 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 12/8 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 3, Alda Leif Jónsdóttir 2/8 fráköst/6 stoðsendingar/3 varin skot.
Fráköst: 31 í vörn, 18 í sókn.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson, Jóhann Gunnar Guðmundsson.
KR - Hamar 69:72
DHL-höllin, Iceland Express-deild kvenna, 11. febrúar 2012.
Gangur leiksins:: 5:9, 14:13, 18:17, 23:19, 31:21, 35:28, 37:33, 40:35, 43:35, 48:41, 52:46, 54:53, 59:61, 59:63, 67:68, 69:72.
KR: Margrét Kara Sturludóttir 22/13 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Hafrún Hálfdánardóttir 21, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 15/6 fráköst, Erica Prosser 5/5 fráköst/7 stoðsendingar, Rannveig Ólafsdóttir 4/4 fráköst, Anna María Ævarsdóttir 2.
Fráköst: 21 í vörn, 10 í sókn.
Hamar: Katherine Virginia Graham 26/12 fráköst, Samantha Murphy 22/5 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 9/5 fráköst, Marín Laufey Davíðsdóttir 6/5 fráköst, Álfhildur Þorsteinsdóttir 4/10 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 3, Jenný Harðardóttir 2.
Fráköst: 24 í vörn, 14 í sókn.
Dómarar: Davíð Kr. Hreiðarsson, Aðalsteinn Hrafnkelsson.






