Lin heldur sínu striki
Jeremy Lin heldur áfram að leika við hvern sinn fingur með New York Knicks-liðinu í NBA-deildinni í körfuknattleik. Hann skoraði 38 stig, átti sjö stoðsendingar og tók fjögur fráköst þegar Knicks vann LA Lakers í Madison Square Garden í gærkvöldi, 92:85.
Lin hefur heldur betur slegið í gegn í síðustu leikjum eftir að hafa loks fengið tækifæri til að sýna hvað í honum býr eftir að hann komst á mála hjá New York-liðinu. Af nokkrum góðum leikjum upp á síðkastið þótti frammistaða hans í gærkvöldi vera sú allra besta sem hann hefur sýnt.
Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers-liðið sem síðast tapaði fyrir Knicks 30. janúar 2007.
Dwyane Wade skoraði 26 stig, Chris Bosh 24 stig og tók 11 fráköst þegar Miami lagði Washington, 106:89. LeBron James skoraði 18 stig og tók níu fráköst í leiknum. Hjá Washington var JaVale McGee með 24 stig auk þess að taka 13 fráköst. Nick Young kom skammt á eftir með 22 stig.
Alls voru 12 leikir í NBA-deildinni í gærkvöldi og í nótt. Úrslit þeirra voru eftirfarandi:
Toronto - Boston 86:74
Miami - Washington 106:89
Atlanta - Orlando 89:87
Milwaukee - Cleveland 113:112 - eftir framlengingu.
Memphis - Indiana 98:92
Dallas - Minnesota 104:97
LA Clippers - Philadelphia 78:77
Chicago - Charlotte 95:64
New Jersey - Detroit 92:109
LA Lakers - New York 85:92
Portland - New Orleans 94:86
Oklahoma - Utah 101:87
Ýtarlega er fjallað Jeremy Lin í Sunnudagsmogganum sem fylgdi Morgunblaðinu í morgun.






