Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 12.2.2012
| 22:48
| Uppfært
13.2.2012
0:58
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
„Ég er ánægður að strákarnir skyldu standast áhlaup Stjörnunnar,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs úr Þorlákshöfn, eftir sigur liðsins í Garðabænum í kvöld, en þar mættust liðin í Iceland Express-deild karla í körfu.
Þorlákshafnarliðið var fámennt, mættu aðeins níu til leiks, en Benedikt sagði nokkuð um forföll vegna veikinda og meiðsla. Hann var samt ekki alveg viss um hvort liðið hefði komið til Garðabæjar á einum bíl. „Það er góð spurning,“ sagði hann og hló. „Ég beið eftir liðinu hér í bænum þannig að ég veit það ekki,“ bætti hann við.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






