Flottur sigur Þórs í Garðabæ

Úr leik Stjörnunnar og Þórs í kvöld. stækka

Úr leik Stjörnunnar og Þórs í kvöld. mbl.is/Ómar

Þór úr Þorlákshöfn vann góðan sigur á Stjörnunni í Garðabænum í Iceland Express-deild karla í kvöld. Lokatölur urðu 80:88 eftir að Þór hafði verið yfir lengst af. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is

Leik lokið, 80:88. Fínn sigur hjá Þór, enleikmenn gáfust ekki upp þó Stjörnumenn sæktu að þeim á lokamínútunum.
Fjölnir - Haukar 68:79 LOKIÐ
Njarðvík - Snæfell 88:78 LOKIÐ?

35 mín. 68:75 Sjö stiga munur en Þór var kominn í 62:75 en Stjarnan hefur aðeins tekið sig á og gert síðustu sex stig og lykilmenn hjá Þór komnir með fjórar villur og dómgæslan síðustu sekúndurnar virðist detta með heimamönnum.

30 mín. 56:63 Það er allt í járnum og þessi tíu stig virðast ætla að verða Stjörnumönnum erfið. Shouse, sem er með 22 stig, setti niður þrist í lokin þannig að munurinn er sjö stig fyrir síðasta leikhluta.
Fjölnir - Haukar 46:61
Njarðvík - Snæfell 65:64

25 mín. 46:57 Sama baráttan heldur áfram en Stjörnumönnum gengur erfiðlega að minnka muninn.
Fjölnir - Haukar 39:53
Njarðvík - Snæfell 53:53

20 mín. 40:49 Þór var kominn með mjög vænlega stöðu, 34:49, en Stjarnan gerði síðustu sex stigin og lagaði stöðuna þannig að munurinn er bara níu stig í hálfleik. Shouse er með 14 stig fyrir Stjörnuna og Darrin Govens 14 fyrir Þór.

15 mín. 28:38 Gestirnir hafa enn undirtökin í nokkuð hröðum og skemmtilegum leik. Vörn Stjörnunnar virkar ekki eins vel og heimamenn vildu.

10 mín. 21:27. Góður kafli hjá Þór breytti stöðunni í lok leikhlutans úr 20:20 í 20:27. Stigahæstur er Renato Lindmets með 8 stig eins og Justin Shouse en hjá Þór er Blagoj Janev með 11 stig. 
Staðan eftir fyrsta leikhluta í Grafarvogi er 14:27 fyrir Hauka
Staðan í Njarðvík eftir fyrsta leikhluta er 24:18 fyrir Njarðvík á móti Snæfelli.

4 mín. 12:7 Stjarnan komst í 7:2 en Þór jafnaði, stefnir í hörkuleik þar sem liðin virðast ekki ætla að gefa neitt eftir og einhverjir gætu lent í villuvandræðum.
Staðan í Grafarvogi er 2:13 fyrir Hauka en jafnara er í Njarðvík þar sem Snæfell er 12:13 yfir.

Liðin hita nú upp af miklum eldmóði en athygli vekur að Þór er aðeins með níu leikmenn á meðan Stjarnan er með 12 leikmenn til taks.

Stjarnan er í þriðja sæti með 20 stig líkt og KR og Keflavík en Þór er í 6. sæti með 18 stig líkt og Snæfell. Það má því búast við skemmtilegum leik í Garðabænum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is