Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 12.2.2012
| 21:06
| Uppfært
22:12
Jón Arnór stigahæstur í sigri Zaragoza
Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur í liði CAI Zaragoza sem vann Asefa Estudiantes 75:72 í efstu deild spænska körfuboltans um helgina. Jón var með 16 stig eins og Bracey Wright en Jón tók auk þess sex fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Hann var sjóðandi heitur fyrir utan þriggja stiga línuna en fjögur af fimm skotum hans þar fundu körfuna.
Haukur Helgi Pálsson var með fjögur stig þegar lið hans Manresa steinlá á útivelli fyrir Gescrap Bizkaia, 88:60. Haukur spilaði í 14 mínútur og tók eitt frákast.
Zaragoza komst með sigrinum í 7. sæti deildarinnar með 11 sigra og 9 töp. Manresa er hins vegar í 12 sæti með 9 sigra og 11 töp.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






