Keflavík jók forskotið á toppnum

Jaleesa Butler var öflug í kvöld. stækka

Jaleesa Butler var öflug í kvöld. Árni Sæberg

Keflavík jók forskot sitt á toppi Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik með öruggum sigri á Fjölni í Dalhúsum í kvöld 93:69. Keflavík er eftir leikinn með 36 stig, fjórum stigum meira en grannar þeirra í Njarðvík.

Pálína Gunnlaugsdóttir fór fyrir Keflavíkurliðinu í stigaskori en hún var með 30 stig og sex stolna bolta. Jaleesa Butler kom næst Pálínu með 24 stig en hún lét rækilega að sér kveða í flestum þáttum körfuboltans. Hún tók ellefu fráköst, gaf níu stoðsendingar stal boltanum jafnoft og varði sex skot.

Brittney Jones var stigahæst hjá Fjölni með 22 stig en hún tók einnig átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Þá stal hún boltanum sjö sinnum af leikmönnum Keflavíkur og varði þrjú skot. Fjölnir er eftir leikinn enn í neðsta sæti deildarinnar með 10 stig.

Ýtarlegri tölfræði hér fyrir neðan.

Fjölnir - Keflavík 69:93

Dalhús, Iceland Express-deild kvenna, 12. febrúar 2012.

Gangur leiksins:: 4:3, 10:12, 16:18, 21:27, 25:36, 31:42, 33:50, 38:52, 44:54, 48:58, 48:67, 55:73, 57:81, 57:85, 62:89, 69:93.

Fjölnir: Brittney Jones 22/8 fráköst/5 stoðsendingar/7 stolnir/3 varin skot, Jessica Bradley 18/5 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 12/5 fráköst, Katina Mandylaris 10/13 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2, Dagbjört Helga Eiríksdóttir 2, Birna Eiríksdóttir 2, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 1.

Fráköst: 24 í vörn, 13 í sókn.

Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 30/6 stolnir, Jaleesa Butler 24/11 fráköst/9 stoðsendingar/9 stolnir/6 varin skot, Sara Rún Hinriksdóttir 16, Shanika Chantel Butler 9/8 stoðsendingar, Helga Hallgrímsdóttir 4, Lovísa Falsdóttir 4, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 4, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2.

Fráköst: 14 í vörn, 11 í sókn.

Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Aðalsteinn Hrafnkelsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is