Hvaða lið leika til úrslita í Höllinni?
Aníta Carter Kristmundsdóttir, til hægri, verður í eldlínunni með Njarðvík í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Það ræðst í kvöld hvaða lið leika til úrslita í bikarkeppni kvenna í körfuknattleik um næstu helgi en undanúrslitaleikirnir fara fram í kvöld. Óvissunni um tímasetningu á bikarleikjunum var eytt á föstudaginn en þá ákvað Keflavík að áfrýja ekki úrskurði aganefndar KKÍ í kærumáli gegn Njarðvík.
Í undanúrslitunum í kvöld eigast við annars vegar Njarðvík og Haukar suður með sjó og hins vegar Snæfell og Stjarnan í Stykkishólmi. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15.
Njarðvík og Haukar áttust við í Iceland Express-deildinni að Ásvöllum á laugardaginn þar sem Njarðvík hafði betur, 74:61, og Haukar fá því gott tækifæri til að hefna ófaranna.
Það má reikna með að á brattann verði að sækja fyrir Stjörnuna gegn Snæfelli í Hólminum. Snæfell leikur í Iceland Express-deildinni og er þar í 5. sæti en Stjarnan leikur í 1. deildinni og er þar í öðru sæti.






