Rondo afgreiddi Chicago Bulls
Stórleikur hjá Rajon Rondo gerði útslagið fyrir Boston Celtics í nótt þegar liðið vann góðan sigur á toppliði Austurdeildar NBA í körfubolta, Chicago Bulls, 95:91 í Boston.
Rondo náði þrefaldri tvennu því hann skoraði 32 stig í leiknum, tók 10 fráköst og átti 15 stoðsendingar, og fjögur vítaskot hans á lokamínútunni vógu þungt. Kevin Garnett skoraði 13 stig og tók 12 fráköst fyrir Boston í leiknum.
Derrick Rose missti af öðrum leik sínum í röð með Chicago vegna bakmeiðsla og munaði um minna. C.J. Watson og Carlos Boozer skoruðu 22 stig hvor fyrir Chicago.
Los Angeles Lakers náði að knýja fram sigur á Toronto Raptors, 94:92, í Kanada, eftir að hafa misst niður 18 stiga forskot. Kobe Bryant kom Lakers yfir, 93:92, þegar aðeins 5 sekúndur voru eftir og Toronto klúðraði síðustu sókninni, þannig að Bryant fékk tvö vítaskot í lokin og skoraði úr öðru.
Þetta var sjötti og síðasti leikur Lakers á ferðalagi sínu og liðið náði að vinna þrjá þeirra. Bryant skoraði 27 stig og Pau Gasol skoraði 16 stig og tók 17 fráköst. Jose Calderon skoraði 30 stig fyrir Toronto.
LeBron James skoraði 23 stig fyrir Miami Heat sem vann fínan útisigur á Atlanta Hawks, 107:87.
Úrslitin í nótt:
Toronto - Lakers 92:94
Boston - Chicago 95:91
Detroit - Washington 77:98
Atlanta - Miami 87:107
Golden State - Houston 106:97
Memphis - Utah 88:98






