Snæfell og Njarðvík í bikarúrslit

Lele Hardy og félagar í Njarðvík leika til úrslita í bikarnum. stækka

Lele Hardy og félagar í Njarðvík leika til úrslita í bikarnum. mbl.is/Árni Sæberg

Það verða Snæfell og Njarðvík sem mætast í bikarúrslitaleik kvenna í körfuknattleik í Laugardalshöllinni á laugardaginn kemur. Snæfell fór létt með Stjörnuna en Njarðvík vann Hauka í hörkuspennandi og framlengdum leik.

Leikurinn í Njarðvík var í járnum allan tímann. Njarðvík virtist vera að innbyrða sigurinn en Jence Ann Rhoads skoraði magnaða 3 stiga körfu fyrir Hauka og tryggði Hafnarfjarðarliðinu framlengingu, 67:67. Sama spennan var í framlengingunni, jafnt á öllum tölum, en Shanae Baker-Brice skoraði sigurkörfuna þegar 9 sekúndur voru eftir og Haukar nýttu ekki lokasóknina. Lokatölur 75:73.

Shanae Baker-Brice skoraði 38 stig fyrir Njarðvík, Petrúnella Skúladóttir 16 og Lele Hardy 13. Hjá Haukum var Rhoads með 29 stig og Margrét Hálfdánardóttir 20.

Snæfell fór létt með 1. deildar lið Stjörnunnar, 101:55, í Stykkishólmi en staðan var 45:29 í hálfleik. Hildur Sigurðardóttir og Hildur Björg Kjartansdóttir skoruðu 22 stig hvor fyrir Snæfell en Bára Fanney Hálfdánardóttir skoraði 15 stig fyrir Stjörnuna.

Snæfell - Stjarnan 101:55

Stykkishólmur, Poweradebikar konur, 13. febrúar 2012.

Gangur leiksins:: 8:2, 16:5, 18:12, 22:16, 27:21, 36:22, 38:27, 45:29, 55:33, 64:33, 71:37, 79:39, 81:48, 88:48, 94:50, 101:55.

Snæfell: Hildur Sigurðardóttir 22/10 fráköst/14 stoðsendingar/5 stolnir, Hildur Björg Kjartansdóttir 22, Alda Leif Jónsdóttir 15/9 fráköst, Jordan Lee Murphree 12, Kieraah Marlow 12/5 fráköst, Sara Mjöll Magnúsdóttir 8/7 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 8/8 fráköst/6 stolnir, Ellen Alfa Högnadóttir 2.

Fráköst: 27 í vörn, 20 í sókn.

Stjarnan: Bára Fanney Hálfdanardóttir 15, Guðrún Ósk Guðmundsdóttir 11/6 fráköst, Heiðrún Ösp Hauksdóttir 10/4 fráköst, Andrea Pálsdóttir 7/8 fráköst, Hanna S. Hálfdanardóttir 7, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 5/4 fráköst.

Fráköst: 17 í vörn, 11 í sókn.

Dómarar: Steinar Orri Sigurdsson, Ísak Ernir Kristinsson.

Njarðvík - Haukar 75:73

Njarðvík, Poweradebikar konur, 13. febrúar 2012.

Gangur leiksins:: 8:6, 14:10, 21:12, 26:16, 28:20, 31:24, 35:28, 37:33, 37:37, 42:41, 47:45, 53:49, 58:51, 58:54, 63:60, 67:67, 71:71, 75:73.

Njarðvík: Shanae Baker-Brice 38/12 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Petrúnella Skúladóttir 16/5 fráköst, Lele Hardy 13/16 fráköst/7 stolnir/5 varin skot, Ína María Einarsdóttir 3, Andrea Björt Ólafsdóttir 2, Salbjörg Sævarsdóttir 2/4 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 1.

Fráköst: 23 í vörn, 15 í sókn.

Haukar: Jence Ann Rhoads 29/10 fráköst/6 stoðsendingar, Margrét Rósa Hálfdánardóttir 20/4 fráköst, Hope Elam 11/17 fráköst, Íris Sverrisdóttir 7, María Lind Sigurðardóttir 2, Guðrún Ósk Ámundadóttir 2/7 fráköst, Sara Pálmadóttir 2/5 fráköst.

Fráköst: 35 í vörn, 14 í sókn.

Dómarar: Jón Guðmundsson, Jakob Árni Ísleifsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is