Jöfnunartilraun Hauka í Njarðvík (myndskeið)

María Lind Sigurðardóttir stækka

María Lind Sigurðardóttir mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Netmiðillinn Leikbrot.is hefur birt myndskeið með lokamínútunum í undanúrslitaleik Njarðvíkur og Hauka í Powerade-bikar kvenna í körfuknattleik sem fram fór í Njarðvík í gærkvöldi. Njarðvík sigraði með tveggja stiga mun eftir framlengdan leik en jöfnunarkarfa var dæmd af Haukum á þeim forsendum að leiktíminn hafi verið liðinn þegar María Lind Sigurðardóttir sleppti knettinum.

Í myndskeiðinu kemur fram að 0,5 sekúndur hafi verið eftir af leiktímanum þegar Haukar fengu innkast sem karfan kom upp úr. Þar sést einnig að leiklukkan var ekki stillt á 0,5 sek og er því ekki hægt að notast við hana þegar karfan er skoðuð á myndbandi.

Í upphafi myndskeiðsins sést einnig glæsileg jöfnunarkarfa Hauka undir lok venjulegs leiktíma. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is