Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 14.2.2012
| 20:05
| Uppfært
20:43
Naumt tap hjá Brynjari og félögum
Brynjar Þór Björnsson lék í 23 mínútur, skoraði sjö stig og tók tvö fráköst þegar lið hans Jämtland tapaði naumlega, 81:79, í heimsókn sinni til LF Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.
Jamtland var sjö stigum yfir í hálfleik, 48:41, en tapaði báðum leikhlutunum í síðari hálfleik.
Eftir tapið í kvöld er Jämtland í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar með 11 sigurleiki af 30 mögulegum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






