Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 15.2.2012
| 8:25
| Uppfært
9:46
Sjötti sigur New York í röð
Nýjasta NBA-stjarnan Jeremy Lin skoraði sigurkörfuna þegar New York Knicks vann sinn sjötta leik í röð í deildinni í Toronto í nótt.
Lin skoraði alls 27 stig fyrir New York sem endurheimti Amare Stoudamire og skilaði hann 21 stigi í 90:87-sigri. Jose Calderon var stigahæstur hjá Toronto Raptors með 25 stig.
Úrslit næturinnar:
Toronto - New York 87:90
Indiana - Miami 90:105
Detroit - San Antonio 95:99
Chicago - Sacramento 121:115
Memphis - Houston 93:83
Oklahoma - Utah 111:85
Denver - Phoenix 109:92
Portland - Washington 109:124
LA Lakers - Atlanta 86:78
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







