Íþróttir
|
Körfubolti
| Morgunblaðið
| 15.2.2012
| 7:41
Úr leik út tímabilið?
Helga Einarsdóttir, annar fyrirliða körfuknattleiksliðs KR, verður líklega ekki meira með á þessu keppnistímabili vegna bakmeiðsla.
Helga tjáði Morgunblaðinu í gær að hún hafi verið máttlaus í öðrum fætinum undanfarið og hafi af þeim sökum lítið getað beitt sér. Hún fór í segulómun á mánudagskvöldið og þar kom í ljós að hún er með tvær bungur í mjóbakinu.
Nánar um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






