Naumt tap gegn Walesbúum
Kvennalandsliðið í badminton tapaði naumlega fyrir Wales, 2:3, í síðasta leik sínum í Evrópukeppninni sem nú stendur yfir í Hollandi.
Íslenska liðið tapaði þar með öllum sínum þremur leikjum í riðlinum og hefur lokið keppni. Frakkar unnu riðilinn, Belgía varð í öðru sæti og Wales í þriðja sæti og Frakkar fara þar með í undanúrslitin.
Ragna Ingólfsdóttir vann einliðaleik sinn gegn Sarah Thomas, 21:11 og 22:20. Tinna Helgadóttir tapaði einliðaleik sínum gegn Carissa Turner eftir æsispennandi oddalotu, 12:21, 21:19 og 18:21. Snjólaug Jóhannsdóttir spilaði einliðaleik gegn Vikki Jones og tapaði 14:21 og 14:21.
Tinna og Ragna spiluðu tvíliðaleik við Sarah Thomas og Carissa Turner og unnu 23:21 og 21:14. Rakel Jóhannesdóttir og Karitas Ósk Ólafsdóttir kepptu við Bethan Higginson og Vikki Jones í tvíliðaleik sem lauk með naumu tapi, 21:23 og 17:21, og þar með var sigurinn í höfn hjá Walesbúum.
Karlalandsliðið leikur nú síðdegis lokaleik sinn á mótinu og mætir þar Lúxemborg.






