Sigurganga New York hélt áfram
Sigurganga New York Knicks hélt áfram í NBA-körfuboltanum í nótt þegar liðið vann Sacramento Kings 100:85. New York hefur nú unnið sjö leiki í röð og er búið að ná 50% vinningshlutfalli.
Jeremy Lin gaf að þessu sinni 13 stoðsendingar en stigaskorið dreifðist vel hjá New York að þessu sinni. Lin hefur eins og kunnugt er verið maðurinn á bak við rispu New York sem sætti harðri gagnrýni fyrir örfáum vikum síðan.
San Antonio Spurs nýtur þess að hafa endurheimt Argentínumanninn Manu Ginobili eftir mánaðarfjarveru vegna meiðsla. Hann skoraði 11 stig þegar liðið vann útisigur á Toronto Raptors 113:106 en Frakkinn Tony Parker var stigahæstur með 34 stig.
Úrslit:
Toronto - San Antonio 106:113
New York - Sacramento 100:85
Orlando - Philadelphia 103:87
Boston - Detriot 88:98
New Jersey - Memphis 100:105
Cleveland - Indiana 98:87
Milwaukee - New Orleans 89:92
Houston - Oklahoma 96:95
Minnesota - Charlotte 102:90
Dallas - Denver 102:84
Phoenix - Atlanta 99:101
Golden State - Portland 91:93
LA Clippers - Washington 102:84






