Stemning í Njarðvík og Stykkishólmi

Frá viðureign Snæfells og Vals í vetur. stækka

Frá viðureign Snæfells og Vals í vetur. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Bikarúrslit eru handan við hornið í körfuboltanum og þar verða fjögur landsbyggðarlið á ferðinni. Í kvennaflokki munu eigast við Njarðvík og Snæfell en hvorugt liðanna hefur unnið bikarinn.

Hildur Sigurðardóttir, leikstjórnandi Snæfells, er enginn nýgræðingur þegar kemur að bikarkeppninni og er á leið í bikarúrslit með þriðja félaginu.

„Ég er ekki viss hversu oft ég hef farið í úrslit en ég vann bikarinn þrisvar með KR að ég held. Ég fór einnig í bikarúrslit með Grindavík á sínum tíma en tapaði,“ sagði Hildur þegar Morgunblaðið heyrði í henni hljóðið í gær. „Þetta er skemmtilegur dagur og einn stærsti leikur tímabilsins ásamt stórum leikjum í úrslitakeppninni enda mikil stemning í kringum leikinn.“

Karlaliðið fer fyrir klappliðinu

Snæfell hefur aldrei fyrr komist í úrslit í kvennaflokki en karlalið félagins varð bikarmeistari fyrir tveimur árum.

„Undirbúningurinn er svolítið öðruvísi þegar um landsbyggðarlið er að ræða. Þegar ég spilaði í bænum var lítið mál að æfa í Höllinni en við þurfum að taka ákvörðun um hvort við förum í bæinn daginn fyrir leik eða ekki,“ sagði Hildur og á þar við að liðunum sem komast í úrslit býðst að taka eina æfingu í Laugardalshöllinni daginn fyrir leik. „Prófa parketið og svona,“ bætti hún við og á von á góðum stuðningi frá Hólmurum.

„Ég reikna alveg með því að Hólmarar verði duglegir við að styðja við bakið á okkur eins og þeir hafa verið. Þeir hafa líka verið duglegir að styðja karlaliðið í gegnum árin og vonandi koma þeir einnig til að hvetja okkur. Mér heyrist að leikmenn karlaliðsins muni verða öflugir á pöllunum þannig að stemningin í félaginu er fín,“ sagði Hildur ennfremur.

Sjá meira í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is