Íþróttir
|
Körfubolti
| Morgunblaðið
| 17.2.2012
| 7:40
Bæði lið hafa þurft að þola bið eftir úrslitaleik
Sögulegur atburður mun eiga sér stað í skagfirskri íþróttasögu þegar Tindastóll frá Sauðárkróki leikur í fyrsta sinn til úrslita í Powerade-bikar karla í körfuknattleik.
Andstæðingar þeirra verða Keflvíkingar sem eru ekki beinlínis blautir á bak við eyrun þegar kemur að bikarúrslitaleikjum. Þeirra sigursæla lið hefur þó ekki unnið bikarinn síðan 2004. Vissulega telst það ekki sérlega löng bið fyrir flest félög en fyrir Keflavík er slík bið nálægt þolmörkum þegar kemur að körfubolta.
Fjallað er um bikarúrslitaleik karla í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag og rætt við þá Helga Rafn Viggósson Tindastóli og Magnús Þór Gunnarsson Keflavík.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







