Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 17.2.2012
| 15:13
Bárður: Mikill spenningur í bæjarfélaginu
Tindastóll hefur leikið frábærlega í körfuboltanum í vetur eftir að Bárður Eyþórsson tók við stjórnartaumunum í haust og liðið leikur til úrslita um Powerade-bikarinn í Laugardalshöll klukkan 16 á morgun en Keflavík verður andstæðingur liðsins.
Mbl.is tók Bárð tali á blaðamannafundi í gær: „Ég sá alveg möguleikann á því að snúa þessu gengi við og láta liðið spila vel. Við höfum gert það í mörgum leikjum og átt fína leiki. Lið sem fer í bikarúrslitaleik hlýtur að hafa verið að gera ágætis hluti,“ sagði Bárður meðal annars.
Bárður sagði að undirbúningur liðsins væri fremur óhefðbundinn, meðal annars vegna þess að liðið kæmi daginn áður í höfuðstaðinn og tæki æfingu í Höllinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






