Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 17.2.2012
| 7:58
| Uppfært
12:04
Chicago vann Boston án Rose
Chicago Bulls sigraði Boston Celtics á heimavelli í Austurstrandarslag í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Chicago sigraði 89:80 þrátt fyrir að leika án Derricks Rose sem er meiddur og hefur unnið 25 leiki af 32 hingað til.
Luol Deng og Carlos Boozer voru stigahæstir hjá Chicago með 23 stig hvor en Kevin gamli Garnett var stigahæstur hjá Boston með 18 stig.
Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni. Indiana Pacers vann heimasigur á New Jersey Nets 93:88 og Los Angeles Clippers vann útisigur á Portland Trail Blazers.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






