Helgi Már stigahæstur í sigri Stockholms

Helgi Már Magnússon lék vel í sigri 08 Stockholm í kvöld. stækka

Helgi Már Magnússon lék vel í sigri 08 Stockholm í kvöld. Kristinn Ingvarsson

Helgi Már Magnússon fór á kostum þegar lið hans 08 Stockholm vann Örebro 91:80 á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. Helgi skoraði 27 stig, tók auk þess 6 fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Helgi Már var með nokkrum yfirburðum stigahæsti leikmaður liðsins en næsti maður skoraði aðeins 19 stig.

Öll Íslendingaliðin spiluðu í kvöld en Jämtland, lið Brynjars Þórs Björnssonar, tók á móti Sundsvall með þá Jakob Örn Sigurðarson, Hlyn Bæringsson og Pavel Ermolinskij, sem reyndar er meiddur, innanborðs. Bæði Jakob og Hlynur léku mjög vel en Sundsvall hafði betur 85:82 eftir æsispennandi lokasekúndur þar sem staðan var jöfn um tíma 80:80.

Jakob skoraði 24 stig, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar en Hlynur lét mun meira að sér kveða í fráköstunum og tók þrettán. Hann gaf lítið eftir í stigaskorun en 14 stig hans hjálpuðu mjög leikmönnum Sundsvall sem er stjórnað af Peter Öqvist landsliðsþjálfara Íslands.

Brynjar Þór átti ekki góðan leik í kvöld og skoraði aðeins 9 stig og þar á meðal tvö síðustu stig leiksins.

Þá skoraði Logi Gunnarsson 14 stig og tók 2 fráköst þegar lið hans Solna tapaði á heimavelli fyrir Norrköping 94:81.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is