Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 17.2.2012
| 7:42
| Uppfært
12:04
Ólöf: Breytum ekki neinu
Ólöf Helga Pálsdóttir, fyrirliði Njarðvíkur, sagði liðið ekki breyta út af sínum hefðbunda undirbúningi fyrir leiki, þegar liðið býr sig undir að mæta Snæfelli í úrslitum Powerade-bikars kvenna í körfuknattleik á morgun.
Njarðvík vann Hauka í gríðarlega spennandi leik sem þurfti að framlengja í undanúrslitum keppninnar í vikunni. Ólöf sagði leikmenn búna að jafna sig eftir þau átök og það væri bara jákvætt að stutt væri á milli leikjanna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






