Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 17.2.2012
| 14:53
| Uppfært
15:31
Sigurður: Reynum að einbeita okkur að leiknum sjálfum
Sigurður Ingimundarson tók við karlaliði Keflavíkur á ný síðastliðið sumar og er búinn að koma liðinu í úrslit bikarkeppni KKÍ í fyrsta skipti síðan 2006.
Mbl.is spurði þennan reynda þjálfara út í það hvernig hann hagaði undirbúningi fyrir bikarúrslitaleiki. „Við reynum að hafa þetta niðri á jörðinni. Ekki alveg eins og hvern annan leik en eins nálægt því og við getum. Við reynum að einbeita okkur að leiknum sjálfum en ekki neinu í kringum hann. Vonandi gefur það góðan árangur.“
Sigurður sagði leikinn vera þann stærsta og skemmtilegasta á árinu og hann vildi ekki endilega halda spennunni mjög lítilli en reynir að gæta þess að hún verði ekki of mikil.
Úrslitaleikur Keflavíkur og Tindastóls hefst í Laugardalshöll klukkan 16 á morgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






