Fyrsti bikarsigur Keflvíkinga í átta ár

Keflvíkingar fagna bikarnum. stækka

Keflvíkingar fagna bikarnum. mbl.is/Golli

Keflavík og Tindastóll áttust við í úrslitaleiknum í Powerade-bikar karla í körfuknattleik í Laugardalshöll klukkan 16:00. Keflavík sigraði 97:95 í leik þar sem þeir höfðu ávallt frumkvæðið. Keflvíkingar fagna sínum fyrsta sigri í bikarkeppninni í átta ár. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Atkvæðamestir:

Keflavík: Charles Parker 32 stig, 13 fráköst. Jarryd Cole 19 stig, 8 fráköst. Magnús Þór Gunnarsson 17 stig, 8 stoðsendingar.

Tindastóll: Maurice Miller 22 stig, 8 stoðsendingar. Curtis Allen 18 stig. Svavar Birgisson 14 stig, 9 fráköst.

40. mín: Leiknum er lokið með sigri Keflvíkinga sem fagna sínum fyrsta bikarmeistaratitli í karlaflokki síðan 2004.

40. mín: Staðan er 95:90 fyrir Keflavík. Tindastóll fær boltann þegar 20 sekúndur eru eftir og tekur leikhlé.

39. mín: Staðan er 95:90 fyrir Keflavík. Tindastóll var í sókn en Friðrik Hreinsson kilkkaði á þriggja stiga skoti.

38. mín: Staðan er 95:88 fyrir Keflavík. Tindastóll er með boltann og akkúrat tvær mínútur eftir.

35. mín: Staðan er 91:80 fyrir Keflavík. Tíminn er að verða naumur fyrir Tindastól til þess að snúa taflinu sér í vil. Douse er búinn að fá sína fimmtu villu hjá Keflavík og kemur ekki meira við sögu.

34. mín: Staðan er 86:78 fyrir Keflavík. Helgi Freyr setti niður þriggja stiga skot og minnkaði muninn niður í fimm stig en Valur Orri svaraði með þriggja stiga körfu.

32. mín: Staðan er 79:72 fyrir Keflavík. Áhugaverð byrjun á síðasta leikhlutanum. Stólarnir minnkuðu muninn niður í 76:70 og þá svaraði Valur Orri með þriggja stiga körfu.

30. mín: Staðan er 76:66 fyrir Keflavík fyrir síðasta leikhlutann. Halldór Örn Halldórsson Keflavík og Helgi Freyr Margeirsson luku leikhlutanum með sitt hvorri þriggja stiga körfunni.

29. mín: Staðan er 69:59 fyrir Keflavík. Þó stemningin sé góð hjá Stólunum og þeir fái gríðarlegan stuðning úr stúkunni þá sér maður það ekki í spilunum að Keflvíkingar missi forskotið niður í síðasta leikhlutanum.

27. mín: Staðan er 67:54 fyrir Keflavík. Þegar Sauðkrækingar virðast vera að nálgast Keflvíkinga þá tekst suðurnesjamönnum að rykkja frá þeim á nýjan leik.

25. mín: Staðan er 60:52 fyrir Keflavík. Kristoffer Douse var að fá sína fjórðu villu hjá Keflavík, fyrstu til þess í þessum leik.

23. mín: Staðan er 56:50 fyrir Keflavík. Síðari hálfleikurinn byrjar vel fyrir Sauðkrækinga og þeir gætu hleypt alvöru spennu í leikinn með sama áframhaldi.

20. mín: Staðan er 52:41 fyrir Keflavík að loknum fyrri hálfleik. Keflvíkingar hafa verið með fín tök á leiknum mest allan fyrri hálfleik en munurinn er þó ekki það mikill að Tindastóll geti ekki snúið blaðinu við. Charles Parker er stigahæstur hjá Keflavík með 17 stig og er með 6 fráköst. Magnús Þór Gunnarsson er með 11 stig og 6 stoðsendingar. Hjá Tindastóli er Maurice Miller stigahæstur með 11 stig en Friðrik Hreinsson og Svavar Birgisson hafa báðir skorað 8 stig.

16. mín: Staðan er 40:29 fyrir Keflavík. Munurinn aftur orðinn talsverður og Keflvíkingar eru að spila góða vörn sem gerir það að verkum að leikmenn Tindastóls eiga erfitt með að finna opin skotfæri.

14. mín: Staðan er 34:28 fyrir Keflavík. Mun meiri kraftur í Sauðkrækingum í upphafi annars leikhluta og þeir hafa minnkað muninn niður í sex stig. Keflvíkingurinn Þröstur Leó Jóhannsson var að skora þriggja stiga körfu fyrir Tindastól.

10. mín: Staðan er 29:18 fyrir Keflavík. Ótrúlegt stigaskor hjá Keflvíkingum í fyrsta leikhluta. Ef Tindastóll ætlar ekki að spila harðari vörn en þetta þá eiga þeir ekki möguleika á móti sigursælu liði Keflavíkur. Svavar Birgisson setti niður þriggja stiga skot fyrir Tindastól á lokasekúndum leikhlutans og það gæti kveikt í Skagfirðinum.

8. mín: Staðan er 22:13 fyrir Keflavík. Valur Orri Valsson (Ingimundarsonar) var að leggja boltann ofan í körfu Sauðkrækinga og Bárður Eyþórsson þjálfari Stólana tekur leikhlé.

6. mín: Staðan er 14:11 fyrir Keflavík. Leikurinn byrjar fjörlega og erlendu leikmennirnir hjá Keflavík láta strax til sín taka.

2. mín: Staðan er 4:3 fyrir Keflavík. Leikurinn hófst klukkan 16:09 eða aðeins á eftir áætlun.

0. mín: Það verður nú að segjast eins og er að Tindastóll fær mun meiri stuðning á pöllunum sem kannski er eðlilegt í ljósi þess að þetta er fyrsti bikarúrslitaleikur félagsins.

0. mín: Keflavík sigraði ÍR, Skallagrím, Fjölni og KFÍ á leið sinni í úrslitin en Tindastóll sló út Álftanes, Þór Þorlákshöfn, Njarðvík og KR.

0. mín: Sigmundur Már Herbertsson, Rögnvaldur Hreiðarsson og Einar Þór Skarphéðinsson annast dómgæslu. Sigmundur er að dæma sinn níunda úrslitaleik í meistaraflokki og Rögnvaldur sinn áttunda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is