Mjög tvísýnt um úrslitin hjá konunum
„Ég er nú á því að úrslitaleikir kvenna hafi verið betri skemmtun undanfarin ár heldur en karlaleikirnir. Leikirnir kvennamegin hafa oft verið mjög spennandi en kannski hefur það eitthvað með það að gera að spennustigið hefur oft verið hátt hjá konunum með tilheyrandi mistökum. Ég er á því að liðið sem nær betri tökum á spennustiginu muni taka þennan leik,“ sagði Ágúst Björgvinsson, þjálfari úrvalsdeildarliða Vals í kvenna- og karlaflokki, þegar Morgunblaðið bað hann um að veita smáinnsýn í það sem koma skal í Laugardalshöllinni í dag.
Reyndir þjálfarar
Njarðvík og Snæfell eigast við í bikarúrslitaleik kvenna klukkan 13.30 en hvorugt liðið hefur orðið bikarmeistari í kvennaflokki. Þjálfarar liðanna Sverrir Þór Sverrisson og Ingi Þór Steinþórsson, hafa hins vegar báðir talsverða reynslu af bikarúrslitaleikjum.
„Sverrir hefur verið þarna bæði sem leikmaður og með kvennalið Keflavíkur. Ingi hefur verið þarna með karlaliðið en einnig með KR-ingum. Hann þekkir það bæði að vinna og tapa þessum leik. Þjálfararnir eru báðir góðir og reyndir og líklega núlla þeir hvor annan nokkurn veginn út,“ sagði Ágúst um þjálfarana.
Nánar er fjallað um bikarúrslitaleikina í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






