Sigurhefðin er sterkasta vopn Keflvíkinga

Keflvíkingar hafa unnið fjölda titla en Tindastóll engan. stækka

Keflvíkingar hafa unnið fjölda titla en Tindastóll engan. mbl.is/Árni Sæberg

Spurður um úrslitaleikinn hjá körlunum klukkan 16 á milli Keflavíkur og Tindastóls segir Ágúst Björgvinsson Keflvíkinga vera sigurstranglegri, einfaldlega hefðarinnar vegna.

„Ég myndi nú segja að Keflavík sé sigurstranglegri. Þar er ótrúleg hefð og hjá Keflvíkingum eru menn eins og Sigurður Ingimundarson og Magnús Þór Gunnarsson sem hafa farið svo oft í Höllina. Þeir eru reyndar ekki margir hjá Keflavík núna en nokkrir.

Ég tel því að Keflavík sé sigurstranglegra liðið en á móti kemur að Tindastóll hefur aldrei farið áður í bikarúrslitaleikinn og það hlýtur að vera alveg ótrúlega mikil stemning fyrir norðan. Þeir eru litla liðið í þessu og þess vegna halda örugglega margir með þeim í þessum slag,“ sagði Ágúst en benti á að Sauðkrækingar tefldu fram leikmönnum með einhverja reynslu.

Nánar er fjallað um bikarúrslitaleikina í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is