Óvænt tap Chicago á heimavelli
New Jersey Nets vann í nótt óvæntan útisigur á Chicago Bulls, efsta liði Austurdeildar NBA í körfubolta, 97:85 í United Center.
New Jersey byrjaði leikinn frábærlega, komst í 22:3 á fyrstu fimm mínútunum og hleypti Chicago ekki nær sér en sjö stig eftir það í leiknum. Deron Williams skoraði 29 stig fyrir New Jersey og Kris Humphries skoraði 24 og tók 18 fráköst. Carlos Boozer og Mike James skoruðu 16 stig hvor fyrir Chicago.
Þá tapaði LA Clippers á heimavelli, 100:103, fyrir San Antonio Spurs í framlengdum leik í Staples Center. Tony Parker skoraði 30 stig fyrir Spurs og átti 10 stoðsendingar, og Tim Duncan, sem gerði mikilvæga þriggja stiga körfu undir lokin, tók 17 fráköst. Blake Griffin skoraði 22 stig fyrir Clippers og tók 20 fráköst.
Úrslitin í nótt:
LA Clippers - San Antonio 100:103 (Eftir framlengingu)
Chicago - New Jersey 85:97
Memphis - Golden State 104:103
Portland - Atlanta 97:77






