Durant yfir 50 og met hjá Oklahoma
Kevin Durant, hinn öflugi leikmaður bandaríska körfuknattleiksliðsins Oklahoma City Thunder, náði að skora 50 stig í fyrsta skipti á ferlinum í NBA í nótt þegar lið hans vann Denver Nuggets, 124:118, í framlengdum leik í deildinni.
Durant endaði með 51 stig eftir að hafa skorað 31 í seinni hálfleiknum en hann var ekki einn um hituna hjá Oklahoma sem setti nýtt NBA-met. Russell Westbrook skoraði 40 stig og Serge Ibaka náði þrefaldri tvennu með því að skora 14 stig, taka 15 fráköst og verja 11 skot.
Þetta er í fyrsta skipti í sögu NBA-deildarinnar sem samherjar ná 50 stigum, 40 stigum og þrefaldri tvennu í sama leiknum.
Þeir Durant og Westbrook sáu um að skora öll 13 stig Oklahoma í framlengingunni. „Þetta var magnaður leikur og því miður þurfti annað liðið að tapa. Kevin, Russell og Serge - það var ótrúlegt að fylgjast með þeim," sagði Scott Brooks, þjálfari Oklahoma, sem er með lið sitt á toppi Vesturdeildar NBA, en þetta var 24. sigur liðsins í 31 leik.
Arron Afflalo skoraði 27 stig fyrir Denver og Andre Miller 21.






