Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 20.2.2012
| 23:09
Hlynur innsiglaði sigur Sundsvall
Hlynur Bæringsson innsiglaði sigur Sundsvall Dragons á Borås Basket í spennuleik í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.
Hlynur skoraði síðasta stigið af vítalínunni en Sundsvall sigraði 88:86. Hlynur kórónaði þar með flottan leik hjá sér en hann skoraði 18 stig og tók 12 fráköst.
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 13 stig en Pavel Ermolinskij er frá vegna hnémeiðsla.
Sundsvall er ríkjandi meistari og er tveimur stigum á eftir toppliði Norrköping.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






