Íþróttir
|
Körfubolti
| Morgunblaðið
| 20.2.2012
| 7:10
Ísfirðingar aftur í úrvalsdeildina
Karla- og kvennalið KFÍ. Karlaliðið er búið að vinna 1. deildina og leikur í úrvalsdeild næsta vetur. www.kfi.is
KFÍ frá Ísafirði er búið að vinna sér sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir eins árs fjarveru. Ísfirðingar þurftu þó ekki að spila til þess að fá sætið endanlega í sínar hendur. Skallagrímur, eina liðið sem gat velt þeim úr efsta sætinu, tapaði fyrir Hetti á heimavelli sínum í Borgarnesi, 88:96, og þar með eru úrslitin í deildinni endanlega ráðin.
KFÍ, undir stjórn Péturs Más Sigurðssonar, hefur unnið 15 af 16 leikjum sínum í deildinni. Fjögur næstu lið fara í umspil um eitt úrvalsdeildarsæti. Skallagrímur og Höttur eru örugg þangað og hin tvö verða líklega Hamar og Breiðablik.
vs@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






