Lin sjóðheitur í sigri á meisturunum
Eftir sjö sigurleiki New York Knicks í röð þar sem allt hefur snúist um nýstirnið Jeremy Lin beið liðið loks ósigur gegn New Orleans Hornets aðfaranótt laugardags, 89:85. Lin og félagar voru þó ekki lengi að jafna sig því þeir unnu góðan sigur á NBA-meisturum Dallas Mavericks í Madison Square Garden í gærkvöld, 104:97. Dallas var tíu stigum yfir þegar skammt var eftir af þriðja leikhluta en heimamenn tóku vel við sér í lokafjórðungnum.
Lin var eins og áður í aðalhlutverki en hann skoraði 28 stig gegn Dallas og átti 14 stoðsendingar. Hann var óhræddur við að taka af skarið þegar á þurfti að halda undir lok leiksins, og setti meðal annars niður þrist sem kom New York í 98:93 þremur mínútum fyrir leikslok. Steve Novak stal hins vegar senunni í lokaleikhlutanum en hann skoraði þá öll 14 stig sín í leiknum, þar af úr fjórum þriggja stiga körfum.
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var að vanda í aðalhlutverki hjá Dallas með 34 stig en þau dugðu skammt að þessu sinni. Dallas hafði unnið sex leiki í röð fyrir leikinn í gærkvöld.
Jared Dudley skoraði 25 stig fyrir Phoenix Suns sem lagði LA Lakers, 102:90. Kobe Bryants skoraði 32 stig fyrir Lakers og Pau Gasol tók 12 fráköst.
Dwyane Wade skoraði 27 stig fyrir Miami Heat sem lagði nágranna sína í Orlando Magic, 90:78, í Flórídaslag.
Úrslitin í gærkvöld og nótt:
New York - Dallas 104:97
Miami - Orlando 90:78
Detroit - Boston 96:81
Cleveland - Sacramento 93:92
Indiana - Charlotte 108:73
New Jersey - Milwaukee 85:92
Houston - Utah 101:85
Minnesota - Philadelphia 92:91
Oklahoma City - Denver 124:118 (Eftir framlengingu)
Phoenix - LA Lakers 102:90






