Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 21.2.2012
| 16:09
ÍR-ingar fá Bandaríkjamann
Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Rodney Alexander er genginn til liðs við úrvalsdeildarlið ÍR-inga og leikur með því á lokasprettinum í úrvalsdeildinni. Þetta kemur fram á karfan.is.
Þar segir Gunnar Sverrisson þjálfari að Alexander hafi komið á sunnudag og æft með liðinu síðan. Þetta sé eitt skrefið í því að berjast fyrir sæti í úrslitakeppninni, en þar er ÍR í hörðum og tvísýnum slag.
Alexander er framherji og kemur úr PBL-deildinni í Bandaríkjunum en það er ein af neðri deildum NBA. Hann er 24 ára gamall og hefur ekki áður spilað í Evrópu en lék um skeið með Americana í Brasilíu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






