Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 21.2.2012
| 19:43
| Uppfært
20:21
Stórleikur Loga dugði ekki til
Stórleikur Loga Gunnarssonar dugði Solna Vikings ekki til sigurs gegn LF Basket á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.
LF Basket sigraði 82:80 í spennandi leik. Logi var langstigahæstur hjá Solna með 30 stig og minnkaði muninn með síðustu körfu leiksins þegar 30 sekúndur voru eftir.
Urule Igbavboa fyrrverandi leikmaður Keflavíkur skoraði fjögur stig á lokasprettinum fyrir LF Basket og alls fimm í leiknum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






