Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 22.2.2012
| 23:43
Bragi: Sorglegt baráttuleysi
Bragi Magnússon, þjálfari Fjölnis, var vonsvikinn með sína leikmenn í tapleiknum gegn Val í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld.
Valur vann 79:67 og Bragi sagði leik Fjölnis hafa einkennst af andleysi og baráttuleysi.
„Mér fannst þetta vera tvö jöfn lið á vellinum og þetta var bara spurning um hvort liðið vildi sigurinn meira. Þær það greinilega meira en mínar stelpur sem er sorglegt,“ sagði Bragi meðal annars við mbl.is í kvöld.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






