NBA: Wade fór mikinn með Miami
Dwyane Wade fór mikinn með liði Miami Heat þegar liðið bar sigurorð af Sacramento Kings, 120:108, í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Wade skoraði 30 stig og átti 10 stoðsendingar en þetta sjöundi sigur Miami í röð og sá 10. í síðustu 11 leikjum. Chris Bosh og Mario Chalmers voru með 20 stig hvor fyrir Miami og stórstjarnan LeBron James var með 18. Tyreke Evans var stigahæstur í liði Sacramento með 21 stig.
Antawn Jamison skoraði 32 stig og tók 10 fráköst fyrir Cleveland sem hafði betur á móti Detroit, 101:100, í æsispennandi leik. Kyrie Irving var með 25 stig fyrir Cleveland en hjá Detroit var Brandon Knight atkvæðamestur með 24 stig.
Sjö leikmenn Portland náðu að skora 10 stig eða meira þegar liðið burstaði San Antonio Spurs, 137:97. LaMarcus Aldridge var stigahæstur leikmanna Portland með 21 stig og næstur kom Jamal Crawford með 20 stig. Í liði SA Spurs sem lék án þriggja lykilmanna, Tim Duncan, Tony Parker og Manu Ginobili, var Kawhi Leonard stigahæstur með 24 stig en Spurs hafði fyrir leikinn unnið 11 leiki í röð.
Úrslitin í nótt:
Cleveland - Detroit 101:100
Indiana - New Orleans 117:108
Miami - Sacramento 120:108
Portland - SA Spurs 137:97
Memphis - Philadelphia 89:76






