Valur sigraði Fjölni - Njarðvík vann KR
Valur sigraði Fjölni 79:67 í Iceland Express-deild kvenna í kvöld en heil umferð var leikin.
Nýkrýndir bikarmeistarar Njarðvíkur héldu sigurgöngu sinni áfram á heimavelli gegn KR. Þær höfðu sjö stiga sigur 78:71. Snæfell vann svo Hauka 77:75 og Keflavík vann Hamar í Sláturhúsinu 73:61.
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is en einnig má nálgast frekari tölfræðilýsingu með því að smella hér.
40. mín: Leik lokið. Valur sigraði 79:67 og þurfti ekki að hafa mjög mikið fyrir sigrinum á lokamínútunum en leikurinn var mjög jafn fram í lokaleikhlutann.
37. mín: Staðan er 74:65 fyrir Val. Vonin er veik hjá Fjölni.
33. mín: Staðan er 68:57 fyrir Val. Góð rispa hjá Valskonum og Bragi Magnússon þjálfari Fjölnis tekur leikhlé.
30. mín: KR er yfir fyrir síðasta leikhlutann í Njarðvík 59:56.
30. mín: Staðan er 56:53 fyrir Val. Leikurinn er í járnum og Fjölnisliðið er líklegt til að jafna og komast yfir. Jones er búin að skora 22 stig en fleiri þurfa að leggja í púkkið í sókninni.
25. mín: Staðan er 48:43 fvrir Val og útlit fyrir spennandi leik í síðasta leikhlutanum. Stigin sem í boði eru í kvöld eru mjög mikilvæg fyrir Fjölni sem er í harðri fallbaráttu við lið Hamars.
20. mín: Staðan er 42:39 fyrir Val að loknum fyrri hálfleik. Kristrún Sigurjónsdóttir er stigahæst hjá Val með 12 stig en Brittney Jones er með 16 hjá Fjölni. Af öðrum leikjum er það að frétta að Njarðvík er yfir á móti KR 41:39 í leikhléi í Njarðvík þar sem Margrét Kara Sturludóttir hefur skorað 18 stig fyrir KR nú þegar. Haukar voru yfir 25:18 gegn Snæfelli að loknum 1.leikhluta en einhverjir erfiðleikar eru með tölfræðilýsingar frá Keflavík og Stykkishólmi.
13. mín: Staðan er 29:28 fyrir Fjölni. Brittney Jones var að koma Fjölni yfir í fyrsta skipti með þriggja stiga körfu.
10. mín: Staðan er 25:18 fyrir Val að loknum fyrsta leikhluta. Valskonur mættu grimmar til leiks og spila góða vörn. Þær hafa svo reynt að keyra hratt upp völlinn þegar þær hafa unnið boltann.
5. mín: Staðan er 11:8 fyrir Val í Grafarvoginum. Signý Hermannsdóttir er í byrjunarliði Vals en hún hefur lítið spilað að undanförnu. Signý er strax komin með tvær villur.






