Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 23.2.2012
| 21:52
| Uppfært
22:31
Ari rekinn frá KR - Finnur tekur við
Körfuknattleiksdeild KR hefur sagt Ara Gunnarssyni þjálfara meistaraflokks kvenna upp störfum að því er fram kemur í tilkynningu sem birt er á heimasíðu KR í kvöld.
Tilkynningin hljóðar þannig;
„Körfuknattleiksdeild KR hefur sagt upp samningi við Ara Gunnarsson, þjálfara meistaraflokks kvenna. Körfuknattleiksdeild KR vill þakka Ara fyrir dvöl sína í félaginu og óskar Ara alls hins besta. Við Ara tekur Finnur Freyr Stefánsson. Finnur er öllum hnútum kunnugur í félaginu og hefur mikið látið að sér kveða í yngriflokkum félagsins. Finnur mun stýra liðinu út þetta keppnistímabil.
f.h. körfuknattleiksdeildar KR
Böðvar E. Guðjónsson
formaður
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






