Lin enn og aftur í stóru hlutverki
Jeremy Lin og Carmelo Anthony hafa átt góðu gengi að fagna með New York Knicks upp á síðkastið. Reuters
Jeremy Lin var enn og aftur atkvæðamikill í liði New York í nótt þegar liðið vann Atlanta, 99:82, í Madison Square Garden í NBA-deildinni í körfuknattleik. Hann skoraði 17 stig og átti níu stoðsendingar í leiknum en þetta var níundi sigur í New York-liðsins í síðustu 11 viðureignum.
Steve Novak skoraði 17 stig, Landry Fields var með 16 stig og Carmelo Anthony skoraði stigi færra fyrir heimamenn í leiknum. Jefff Teahue var með 18 stig fyrir Atlanta sem verður án sín helsta leikmanns Joe Johnson um skeið en hann er meiddur á hné.
Pau Gasol skoraði 24 stig og tók níu fráköst fyrir LA Lakers þegar liðið vann nauman sigur á Dallas, 96:91, á heimavelli. Kobe Bryant var rólegur í leikum og skoraði aðeins 15 stig. Þjóðverjinn Dirk Novitzki skoraði 25 stig fyrir lið Dallas og Vince Carter var með 20.
Þrettán leikir voru á dagskrá NBA-deildarinnar í gærkvöldi og í nótt. Úrslit þeirra voru:
Toronto - Detroit 103:93
Charlotte - Indiana 88:102
Oklahoma City - Boston 119:104
New York - Atlanta 99:82
Houston - Philadelphia 93:87
Phoenix - Golden State 104:106
LA Clippers - Denver 103:95
Washington - Sacramento 107:115
Cleveland - New Orleans 84:89
New Jersey - Orlando 91:108
Chicago - Milwaukee 110:91
Minnesota - Utah 100:98
Dallas - LA Lakers 91:96






