Keflvíkingar skora á Stjörnumenn

hart var tekist á í oddaleik Stjörnunnar og Keflavíkur á …
hart var tekist á í oddaleik Stjörnunnar og Keflavíkur á síðasta fimmtudag. Árni Sæberg

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur væntir þess að stjórn Körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar taki á máli Fannars Helgasonar, leikmanns Stjörnunnar, innan eigin raða en hann sló tvisvar með olnboga í andlit Vals Orra Valssonar, leikmanns Keflavíkur, í þriðja leik Stjörnunnar og Keflavíkur í 8 liða úrslitum Íslandsmótsins síðasta fimmtudag.

Ekki hægt að útiloka að stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur kæri atvikin til Körfuknattleikssambandsins, verði ekki tekið á málinu innan Stjörnunnar.

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur sendi í kvöld frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna málsins.

 „Hart hefur verið sótt að Keflavík að kæra umrætt atvik enda virðist sem Körfuknattleikssamband Íslands hyggist ekkert aðhafast í málinu. Má jafnvel ganga svo langt að segja að með því að aðhafast ekki sé Körfuknattleikssamband Íslands að samþykkja þann fádæma fautaskap sem Fannar Helgason sýndi af sér í umræddum leik og tengist körfuboltaíþróttinni á engan hátt.

Þó dómarar leiksins hafi á einhvern óskiljanlegan hátt ákveðið að dæma ekkert á Fannar Helgason, þrátt fyrir að vera í góðri aðstöðu til að sjá brotin, er það mat Keflavíkur að körfuknattleiksdeild Stjörnunnar (Stjarnan) hljóti að líta umrætt atvik mjög alvarlegum augum. Þess ber að geta að Stjarnan kærði Keflavík og Magnús Þór Gunnarsson til aga- og úrskurðarnefndar KKÍ eftir 2. leik liðanna í 8-liða úrslitum fyrir mun vægara atvik, þar sem þess var meðal annars krafist að Magnús Þór yrði settur í leikbann. Keflavík væntir þess því að Stjarnan taki á málinu innan eigin herbúða. “

Hægt er að sjá umrædd atvik á meðfylgjandi upptöku eftir 14,28 mínútur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert