„Þetta er hið versta mál með Darra,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, við mbl.is nú seint í kvöld en Darri Hilmarsson, leikmaður Þórs, var fluttur á sjúkrahús í miðjum sigurleik liðsins, 83:81, gegn Tindastóli í kvöld.
Sigurinn var svo sannarlega súrsætur því Darri fékk högg á viðbeinið í leiknum og færðist það til um einn sentimeter frá öðru beini. Útlitið ekki gott fyrir þennan öfluga leikmann.
„Það er nánast útilokað að hann spili meira á tímabilinu. Þó þetta væri brot væri hann alltaf frá í einhverja þrjá mánuði. Þetta er hið versta mál. Ég væri til í að gefa þessi stig frá mér í kvöld ef ég fengi Darra aftur,“ sagði Benedikt sem var búinn að heyra hljóðið í Darra eftir leikinn.
„Hann var bara upp á spítala og var að bíða eftir einhverjum sérfræðingi. Ég veit ekki hvað læknar gera í svona málum. Þessi tvö stig í kvöld eru afskaplega lítil í stóra samhenginu,“ sagði Benedikt Guðmundsson.