Vetrarstarfið fyrir bí í fyrstu tilraun

Öll erfiðisvinnan í vetur við að ná sem bestu sæti í Dominos-deildinni, og þar með heimavallarrétti í úrslitakeppninni, fór fyrir lítið hjá Keflvíkingum í gærkvöld. Stjarnan kom í heimsókn og stal réttinum í leik sem gaf til kynna að löng og ströng rimma sé framundan hjá þessum liðum.

Þrátt fyrir að hafa tvö síðustu ár verið slegnir út af Stjörnunni í 8-liða úrslitum var eins og Keflvíkingar hefðu ekki einn einasta blóðdropa á tönnunum. Þeir virkuðu værukærir á meðan Stjörnumenn, tilbúnir að toppa þegar það telur mest, settu í fimmta gír strax í byrjun leiks. 

Sjá grein um leikinn í heild í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert