Ívar þjálfar karla- og kvennalið Hauka

Ívar Ásgrímsson.
Ívar Ásgrímsson. mbl.is/Ómar

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur ráðið Ívar Ásgrímsson sem þjálfara beggja meistaraflokka félagsins og mun hann stýra kvenna- og karlaliðum Hauka næstu tvö árin.

Ívar hefur stýrt karlaliði Hauka undanfarin ár og undir stjórn hans vann liðið sér sæti í Dominos-deildinni í fyrra. Nýliðarnir stóðu sig afar vel og komust í úrslitakeppnina en voru slegnir út af Njarðvíkingum í átta liða úrslitunum. Á dögunum var Ívar ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins fyrir verkefni liðsins í sumar.

Ívar leysir Bjarna Magnússon af en Bjarni hefur þjálfað kvennalið Hauka undanfarin þrjú ár. Undir hans stjórn varð liðið bikarmeistari í ár en tapaði fyrir Snæfelli í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn á dögunum. Bjarni kom Haukaliðinu tvívegis í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert