Marín Laufey til Keflavíkur

Marín Laufey Davíðsdóttir og Falur Harðarson formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.
Marín Laufey Davíðsdóttir og Falur Harðarson formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. Ljósmynd/keflavik.is

Körfuknattleikskonan Marín Laufey Davíðsdóttir er gengin til liðs við Keflvíkinga og leikur með þeim á næsta keppnistímabili en hún hefur samið við félagið til tveggja ára. Þetta kemur fram á vef Keflavíkur.

Marín Laufey er 18 ára og var í lykilhlutverki hjá Hamri í úrvalsdeildinni í vetur. Hún skoraði að meðaltali 12 stig og skoraði 11 stig í leik í deildinni á nýliðnu tímabili. Hún er fjölhæf íþróttakona og varð glímudrottning Íslands fyrir tveimur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert