Davíð Páll til liðs við Keflavík

Davíð Páll Hermannsson, lengst til hægri.
Davíð Páll Hermannsson, lengst til hægri. mbl.is/Ómar Óskarsson

Úrvalsdeildarlið Keflavíkur í körfuknattleik karla hefur fengið Davíð Pál Hermannsson til liðs við sig frá Haukum.

Karfan.is greinir frá þessu en Davíð Páll er hávaxinn framherji sem lék 25 leiki með Haukunum á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði að jafnaði 6,7 stig í leik og tók 3 fráköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert