Jón Arnór og félagar enn taplausir

Jón Arnór Stefánsson skoraði sjö stig fyrir Málaga í dag.
Jón Arnór Stefánsson skoraði sjö stig fyrir Málaga í dag. Ljósmynd/Unicaja Málaga

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í spænska körfuknattleiksliðinu Unicaja Málaga unnu þægilegan sigur á liði La Bruixa d’Or í spænsku 1. deildinni í dag, 81:65.

Jón Arnór lék í rúman stundarfjórðung, skoraði sjö stig og gaf þrjár stoðsendingar, en það var fyrst og fremst í þriðja leikhluta þar sem liðsmenn Málaga sigu fram úr.

Lið Málaga er í öðru sæti deildarinnar og hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína leiki sína, líkt og Barcelona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert