Körfuboltinn í beinni - fimmtudagur

Darrel Lewis úr Tindastóli og Michael Craion úr KR í …
Darrel Lewis úr Tindastóli og Michael Craion úr KR í leik liðanna í kvöld. mbl.is/Kristinn

Fyrstu þrír leikirnir í þriðju umferð Dominos-deildar karla í körfuknattleik fara fram í kvöld þar sem KR mætir Tindastóli, Stjarnan leikur við Grindavík og Njarðvík tekur á móti ÍR. Fylgst er með gangi mála í beinu lýsingunni KÖRFUBOLTINN Í BEINNI hér á mbl.is.

Leikirnir hefjast allir klukkan 19.15. Mbl.is er á tveimur leikjanna, í DHL-höll KR-inga og í Ásgarði í Garðabæ, og fylgist jafnframt með því sem gerist í leiknum í Njarðvík.

Staðan fyrir þriðju umferðina er þannig:
Haukar 4 stig, Tindastóll 4, KR 4, Keflavík 4, Snæfell 2, Grindavík 2, Njarðvík 2, Þór Þ. 2, Stjarnan 0, ÍR 0, Skallagrímur 0, Fjölnir 0.

Til að fylgjast með beinu lýsingunni, smellið á KÖRFUBOLTINN Í BEINNI.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert