Sigur hjá Jóni í Meistaradeildinni

Jón Arnór Stefánsson leikur á meðal þeirra bestu í Evrópu.
Jón Arnór Stefánsson leikur á meðal þeirra bestu í Evrópu. mbl.is/Árni Sæberg

Spænska liðið Unicaja Malaga sigraði þýska liðið ALBA Berlin í Meistaradeildinni í körfuknattleik í kvöld á Spáni 87:84 eftir framlengdan leik. 

Leikurinn var gríðarlega jafn og aldrei munaði nema örfáum stigum á liðunum. Þau skiptust á að vera með forystuna en Þjóðverjarnir voru ívið oftar yfir. 

Jón Arnór Stefánsson lék í 14 mínútur hjá Unicaja og skoraði 4 stig og gaf eina stoðsendingu. Hann skoraði úr báðum skotum sínum innan teigs en bæði þriggja stiga skot hans geiguðu. 

Tímabilið byrjar vel hjá Jóni á nýjum stað því Unicaja hefur unnið báða leiki sína í Meistaradeildinni og alla þrjá í spænsku deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert