Hlynur lét til sín taka

Hlynur Bæringsson
Hlynur Bæringsson mbl.is/Golli

Hlynur Bæringsson lét enn og aftur til sín taka í kvöld þegar Sundsvall vann KFUM Nässjö, 84:70, í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Hann skoraði 13 stig, tók 13 fráköst og átti tvær stoðsendingar í leiknum. Fleiri Íslendingar komu við sögu í leiknum. 

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 14 stig, tók tvö fráköst og átti fjórar stoðsendingar. Ægir Þór Steinarsson skoraði sjö stig, tók tvöfráköst og átti fimm stoðsendingar og Ragnar Nathanaelsson skoraði tvö stig. Allir leika þeir með Sundsvall Dragons sem komið er upp í sjötta sæti deildarinnar af 11 liðum með þessum ágæta sigri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert