Enn tapar Miami

Frá viðureign Clippers og Miami í nótt.
Frá viðureign Clippers og Miami í nótt. AFP

Aðeins tveir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt þar sem  LA Clippers og Sacramento fögnuðu sigrum.

Clippers hafði betur gegn Miami, 110:93, á heimavelli sínum. Chris Paul og Blake Griffin voru með 26 stig hvor fyrir LA Clippers en hjá Miami var Chris Bosh með 28 stig en þetta var fjórði tapleikur Miami í síðustu fimm leikjum.

Sacramento bar sigurorð af Chicago, 103:88. DeMarcus Cousins var með 22 stig og 14 fráköst í liði Sacramento en hjá Chicago, sem tapaði sínum fyrsta leik á útivelli, var Jimmy Butler með 23 stig. Chicago lék án þeirra Paus Gasols og Derricks Rose, sem báðir eru meiddir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert